12.6.2009 | 23:11
Sigurgeir á Völlum!
Sigurgeir bóndi á Völlum í Reykjadal lagði heldur betur sín lóð á vogarskálar söfnunarinnar þegar hann ákvað að halda upp á 70 ára afmælið sitt með því að taka þátt í rennibrautarsöfnunarfjölskylduhátíð á Laugum. Hátíðin var haldin við Sundlaugina á Laugum á uppstigningardag, fimmtudaginn 21. maí 2009 milli kl. 15-17.
Þar voru:- Hoppukastalar í boði Garðars Héðinssonar í Laxárvirkjun
- Uppboð í umsjón Stefáns í Hólkoti
- Grillaðar pylsur, drykkir og nammi
Á fjórða hundrað manns kom á svæðið og söfnuðust alls um 400 þúsund krónur og eftir þennan dag voru til í sjóðnum um 680 þúsund.
Sérstakar þakkir fá eftirtaldir aðilar sem lögðu framtakinu lið: Þingeyjarsveit, Tryggvi sveitarstjóri og starfslið Sundlaugarinnar á Laugum, þau Snæbjörn og Hrefna, Garðar Héðinsson (Hoppukastalaleiga), Stefán Þórisson, uppboðshaldari, Fjarðarkaup, Myllan, Ölgerðin, Norðlenska, Emmess ís, Prjónabúðin Tinna, Leikfélag Akureyrar, Snyrtipinninn, Proact, Tím heildverslun, Ásbjörn Ólafsson heildverslun, 66°N, Stóruvellir, Ásta Price nuddari, Jarðböðin í Mývatnssveit og Margt smátt. Jafnframt þökkum við öllum hjálparhellunum sem lögðu okkur lið með margvíslegri aðstoð þennan magnaða dag. Við skorum á alla þá sem áhuga hafa á því að koma upp rennibraut á Laugum að styðja verkefnið áfram á einn eða annan hátt. Leggja má inn á reikning söfnunarinnar í Sparisjóði Suður-Þingeyinga: 1110-05-402638, kt.: 040269-4609.
Um bloggið
Elínborg B Benediktsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.